Færsluflokkur: Bloggar
22.2.2008 | 00:32
Myndir
Endilega sendið mér myndir, greinar, brandara, auglýsingar ef þú ert að gera eitthvað sniðugt eða hvað sem er sem þið haldið að mætti vera á síðunni.
Ég bíð spenntur ásamt fleirum.
kv.
Ísleifur
PS Hef ekkert að gera núna á kvöldin.
Á pólsku: Proszę posyłają obrazy i *yokes*
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2008 | 19:48
Örn Garðars. sér um matinn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2008 | 10:45
Fékk þennan sendan í pósti
þorpsbúum á 1000 krónur stykkið.
Þar sem mikið var um apa í nágrenni þorpsins, fóru þorpsbúar að veiða
apana og selja manninum þá.
Maðurinn keypti þúsundir apa af þorpsbúum á 1000 krónur, en þegar
framboðið fór að minnka, bauðst maðurinn til að borga 2000 krónur
fyrir apann. Aftur jókst framboðið um tíma, en síðan minnkaði það enn
frekar og hætti síðan alveg þar sem erfiðara var fyrir þorpsbúa að
finna fleiri apa til að selja.
Maðurinn tilkynnti þá að hann mundi borga 5000 krónur fyrir hvern apa
sem hann fengi, en hann þyrfti að skreppa frá í smá tíma og
aðstoðarmaður hans mundi sjá um kaupin á meðan.
Eftir að maðurinn var farinn, hóaði aðstoðarmaðurinn þorpsbúum saman
og bauðst til að selja því apana, sem voru geymdir í búrum, á 3500
krónur stykkið. Fólkið gæti svo þegar maðurinn kæmi aftur selt honum
apana á 5000 krónur. Þorpsbúar söfnuðu því saman öllu sínu sparifé og
keyptu apana af aðstoðarmanninum.
Síðan hefur ekkert spurst til mannsins eða aðstoðarmannsins.
Núna veistu allt um hvernig hlutabréfamarkaðurinn virkar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2008 | 19:53
Bréfið sem sent var út.
Bloggar | Breytt 18.2.2008 kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.2.2008 | 21:28
Bréf farin til fermingarbarna
Nú hafa bréf verið send til fermingarbarna ´64 með upplýsingum um dagskrá ofl.
Ég ætla að byrja á að skora á Stebbu Valgeirs og Siggu Birnu að senda inn fermingarmyndir af sér. Þær skora síðan á e-h. Vonandi heldur áskorunin svo áfram koll af kolli
kv. ABG
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2008 | 20:53
Nefndin hittist
Takið frá daginn !!! 3. maí
Nefndin hittist á mánudaginn hjá Lóu, undirbúningur gengur vel og ekki er annað að heyra en spenningurinn sé farinn að magnast. Bréf mun berast ykkur í næstu viku með upplýsingum um fyrirhugað fermingarmót. Nú er bara að vera dugleg að blogga kæru vinir og miðla skemmtilegum sögum eða einhverju spennandi úr ykkar lífi svo ekki sé minnst á að dusta nú rykið af gömlum myndum og skanna þær inn, og koma þeim til vefstjórans hans Ísleifs.
Stefna ekki allir á að mæta í afmælið þann 3ja maí?
Fermingarafmælisnefnd 2008
Anna Bára Gunnarsdóttir
Ingibjörg Guðjónsdóttir
Íris Kristjánsdóttir
Ísleifur Gíslason
Jón Pétursson
Kristín Jóna Hilmarsdóttir
Ólafía G. Bragadóttir
Ólafur G. Gunnarsson
Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir
Bloggar | Breytt 31.1.2008 kl. 09:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.1.2008 | 03:57
Fermingarafmæli árgangs 1964 Keflavík
Sæl verið fólkið.
Nú er undirbúningur 30. ára fermingarafmælinu á fullu.
Þessi blog síða er tileinkuð þessum merkilega atburði.
Hér munum við skiptast á skilaboðum, myndum, upplýsingum um hvort annað og gaman væri ef einhverjir gætu sagt skemmtilegar sögur af jafnöldrum sínum.
kv.
Ísleifur Gíslason
isl@simnet.is s:896 0350
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)