1.5.2008 | 23:01
Dagskrá 3ja maí
Nú eru 41 klukkutími þar til fjörið hefst.
Dagskráin verður eftirfarandi:
Mæting kl. 17:00 í Keflavíkurkirkju. Þar munum við eiga góða stund saman. Eftir það er tími fyrir hitting, en munið elskurnar að
KK húsið opnar kl. 19:00. Dregið verður í sæti (þetta var óvænt) þannig að þú lendir nú pottþétt með einhverjum skemmtilegum á borði
Borðhald hefst stundvíslega kl. 19:30.
Veislustjóri kvöldsins verður Stefanía Valgeirsdóttir.
Ásgeir Páll mun síðan halda uppi fjörinu langt fram á nótt.
Ekki má gleyma óvæntu skemmtiatriði sem aldrei mun gleymast.
Hlökkum mikið til að hitta ykkur hress og kát á laugardaginn
Kveðja
Kristín, Lóa, Jón, Inga, Íris, Anna Bára, Ísleifur, Óli og Sigga.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.