Einn ...

Maður nokkur var að aka bíl sínum heim í mikilli rigningu, þegar hann sér unga konu við bilaðan bíl sem veifar til hans, Maðurinn tekur konuna gegnvota upp í, og spyr hvert hún sé að fara, hún segist vera á leið í næsta bæ, Maðurinn býður henni því heim, þar sem stutt var heim til hans og hún rennvot. Þegar heim er komið, eru skilaboð frá konunni hans að hún hafi farið út að hitta vinkonur sínar.

Nokkru seinna kemur frúin heim og fer upp í svefnherbergi, og sér þar manninn sinn vera í samförum við ókunnuga konu. Konan hleypur niður og maðurinn á eftir, og í miðjum stiganum meðan hann hysjar upp um sig buxurnar kallar hann, "ég get útskýrt" konan stoppar og segir "ég myndi elska að heyra þig útskýra þetta". "

 Sko, ég var að keyra heim og stoppa fyrir konunni þar sem hún stóð út í rigningunni og bauð hjálp mína, svo komum við hingað og hún spurði mig hvort konan mín ætti einhver gömul föt til að lána henni"! , "ég sagði þá að þú ættir buxur sem þú væri löngu hætt að nota, og blússu sem þú værir löngu, löngu hætt að nota, einnig lét ég hana hafa sokka og skó sem þú varst löngu síðan hætt að nota, og að endingu lét ég hana hafa jakka sem þú varst fyrir lifandis löngu hætt að nota".

Svo sagði maðurinn daufum orðum, "svo spurði stúlkan mig hvort það væri eitthvað fleira sem þú værir hætt að nota".

 

kv.

Gaui og Sævar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband